24. júní 2026, kl. 17:00–20:00

Hringrásin – Uppgötvaðu vatnið í borginni

Elliðaárstöð

Á Jónsmessu, 24. júní, bjóða Elliðaárstöð, Orkuveitan og LIFE Icewater í hjólaferð um Reykjavík þar sem vatnið er í aðalhlutverki.

Takmarkað pláss er í ferðina og því er skráning nauðsynleg. Skráning: https://forms.microsoft.com/e/x6fdMnzTvC

Boðið verður upp á nesti.

Ferðin markar opnun Hringrásarinnar, nýrrar hjóla- og fræðsluleiðar um vatnið í Reykjavík. Leiðin er um 34 km og er að mestu leiti á hjólastígum og aðgengileg borgarhjólum. Aðeins á einu svæði eru malarstígar, en það er í kringum rauðavatn.

Á leiðinni stoppum við á átta stöðum og fræðumst um ferðalag vatnsins um borgina, frá grunnvatni og vatnsverndarsvæðum til fráveitu, sjávar og þeirra innviða sem gera borgarlífið mögulegt.

Sérfræðingar Orkuveitunnar leiða ferðina og segja frá. Hvernig verndum við grunnvatnið? Hvað verður um regnið þegar það fellur í Reykjavík? Hvernig getum við tryggt hreint vatn fyrir komandi kynslóðir?

Hringrásin hefst og endar í Elliðaárstöð og er hjóluð í áttu. Leiðin skiptist í tvo samtengda hringi sem mætast í Elliðaárstöð og tengir saman átta fræðslustopp um borgina. Lögun leiðarinnar minnir á tákn óendanleikans og endurspeglar hringrás vatnsins sjálfs.

Að opnunarferð lokinni verður hægt að fara leiðina á eigin vegum með aðstoð korts, skilta og fræðsluefnis á vef.

Leiðin er hluti af ICEWATER verkefni Elliðaárstöðvar, sem miðar að því að auka þekkingu almennings á vatni í borginni og mikilvægi grunnvatns, vatnsverndar og sjálfbærrar vatnsnýtingar. Hringrásin er framlag Elliðaárstöðvar og Orkuveitunnar til þess að gera vatnið í borginni sýnilegra og skiljanlegra fyrir almenning.

Hönnuðir Hringrásarinnar eru Sædís Ólafsdóttir, auðlindaleiðtogi fráveitu hjá Orkuveitunni, Þráinn Friðriksson, auðlindaleiðtogi Hitaveitu hjá Orkuveitunni, Elísabet Jónsdóttir, hönnuður og sýningastjóri Elliðaárstöðvar og Margrét Hugadóttir, leiðtogi vísindamiðlunar.

Viðburður á vef Elliðaárstöðvar: https://ellidaarstod.is/vidburdur/hringrasin/

See less

Staðsetning

Elliðaárstöð

Rafstöðvavegi 6, 110 Reykjavík
Hafa samband

ellidaarstod@ellidaarstod.is

Hafa samband

Taktu þátt í vegferðinni!

Hér getur þú skráð þig á póstlistann. Við sendum þér fréttir frá því helsta sem er að gerast í Icewater verkefninu.

Skrifstofa

Suðurlandsbraut 24

Sími

+354 569 6000

Netfang

icewater@uos.is

Icewater