25.–26. september 2026
HönnunarÞing
Stéttin – Húsavík
HönnunarÞing er árleg hátíð hönnunar, nýsköpunar og skapandi hugsunar sem fer fram á Húsavík dagana 25–26. september. Í ár er áhersla hátíðarinnar á orku og margvíslega snertifleti hennar við hönnun, nýsköpun og sjálfbærni.
Eimur og LIFE Icewater taka þátt í hátíðinni með dagskrárlið sem tengist vatni, sjálfbærri auðlindanýtingu og nýsköpun. Nánari upplýsingar um þátttöku Icewater verða birtar þegar nær dregur.
Aðgangur er ókeypis á flesta dagskrárliði og öll áhugasöm eru hvött til að kynna sér fjölbreytta dagskrá hátíðarinnar.
Nánari upplýsingar
👉 Facebook-viðburður: HönnunarÞing // DesignThing | Facebook
👉 Vefur HönnunarÞings: Hönnunarþing – Hraðið miðstöð nýsköpunar

EUROLAG11
Hringrásin – Uppgötvaðu vatnið í borginni
Fjörudýrasmiðja með Náttúruminjasafni Íslands og Hafrannsóknastofnun
Dagur Vatnsins
Safnanótt 2026
Umhverfisstofnun ásamt samstarfsaðilum hlýtur 3,5 milljarða króna styrk úr LIFE
