Fyrsti ársfundur LIFE Icewater haldinn í Grundarfirði 15 og 16. apríl

Fyrsti ársfundur Icewater verkefnisins var nýverið haldinn í Grundarfirði. Um 60 fulltrúar sóttu fundinn og fengu frábærar móttökur heimamanna. Fjölbreyttur hópur samstarfsaðila stendur að verkefninu, þar á meðal stofnanir, sveitarfélög og fyrirtæki. Markmið fundarins var að fara yfir stöðu verkþátta innan verkefnisins, kortleggja næstu skref og stilla saman strengi.

Icewater er mjög umfangsmikið samstarfsverkefni sem hefur það að markmiði verkefnisins er að hraða og bæta innleiðingu vatnaáætlunar á Íslandi með því að auka þekkingu á sjálfbærri nýtingu, eiginleikum og ástandi vatns, bæta vatnsgæði og stuðla að samhæfðri stjórnsýslu í vatnamálum.

Grundarfjörður er í fararbroddi í innleiðingu blágrænna ofanvatnslausna á Íslandi

Hápunktur fundarins var kynning á innleiðingarverkefni Grundarfjarðarbæjar innan Icewater og vettvangsferð þar sem framkvæmdir voru kynntar fyrir hópnum. Nanna Vilborg Harðardóttir verkefnastjóri hjá Grundarfjarðarbæ heldur utan um verkefnið, sem miðar að innleiðingu blágrænna ofanvatnslausna auk annarra úrbóta í fráveitu innan bæjarins.

Taktu þátt í vegferðinni!

Hér getur þú skráð þig á póstlistann. Við sendum þér fréttir frá því helsta sem er að gerast í Icewater verkefninu.

Skrifstofa

Suðurlandsbraut 24

Sími

+354 569 6000

Netfang

icewater@uos.is

Icewater