Líf og fjör á Vísindavöku

Náttúruminjasafn Íslands og Hafrannsóknastofun tóku sameiginlega þátt í Vísindavöku nú um helgina undir merkjum Vatnalífs með slagorðið Vinnum saman að verndun vatns.
Vísindavakan í ár var einstaklega vel sótt og voru gestir ríflega 7.000. Það var því mikið líf og fjör og glaðir gestir á öllum aldri sem fengu innsýn inn í lífríkið í ferkvatni og sjó.
Áhugasamir fengu að skoða og læra um ýmis fjörudýr og þörunga og skoða muninn á lífverum í sjó og ferskvatni. Boðið var upp á föndursmiðju þar sem gestir gátu sest niður og notið þess að föndra glitrandi fjörudýr og síðast en ekki síst gátu gestir fengið tattú af lífverum úr fjörunni.
Stofnanirnar voru afar ánægðar með samstarfið og góðar viðtökur gesta. Sameiginleg þátttaka gaf þeim tækifæri til að miðla þekkingu sinni á lífríki vatns og sjávar með fjölbreyttum og aðgengilegum hætti.
Myndir frá Vísindavökunni má sjá hér að neðan.
NÝLEGAR FRÉTTIR
SJÁ ALLAR30 september 2026
Líf og fjör á Vísindavöku21 september 2026
LIFE Icewater fær íslenska heitið Vatnalíf14 september 2026
Icewater á Nordic-Baltic LIFE Platform Meeting í Eistlandi
