Tjörnin, flóðavarnir og fráveitumál til umfjöllunar á blágrænu málþingi

Vatnsgæði og aðgerðir við Tjörnina og Vatnsmýrina, blágrænar lausnir, fráveita og flóðahætta í Kvosinni voru í brennidepli á málþingi Reykjavíkurborgar um Vatnalíf.

Málþingið fór fram í Tjarnarsal Ráðhúss Reykjavíkur 23. september og var vel sótt. Þar voru kynntar niðurstöður, yfirstandandi aðgerðir og næstu skref, með erindum frá Reykjavíkurborg, Veitum, Umhverfis- og orkustofnun og sérfræðingum sem koma að Vatnalífi.

Tjörnin og Vatnsmýrin

Tjörnin og Vatnsmýrin voru áberandi í fyrri hluta málþingsins. Fjallað var bæði um ástand vatnsins og þær aðgerðir sem unnið er að eða eru fyrirhugaðar til að bæta vatnsgæði og vistkerfi svæðisins.

Anna Rósa Böðvarsdóttir, deildarstjóri á skrifstofu umhverfisgæða hjá Reykjavíkurborg, fór yfir verkefni Vatnalífs í Reykjavík og Þórhildur Þórhallsdóttir, landslagsarkitekt hjá Landmótun, kynnti bæði nýlega lokinni hólmagerð í stórfa hólmanum í Tjörninni og fyrirhugaða hólmagerð í suðurhluta Tjörninni.

Jón Pétur Wilke Gunnarsson, verkefnastjóri vatnsmiðla hjá Veitum, fjallaði um stöðu vinnunnar í Vatnsmýrinni og næstu skref. Vatnsmýrin og Tjörnin mynda samhangandi vatnakerfi og því skiptir meðhöndlun vatns í Vatnsmýrinni máli fyrir vatnsgæði og vistkerfi Tjarnarinnar.

Svava Svanborg Steinarsdóttir, verkefnastjóri vöktunar hjá Heilbrigðiseftirliti Reykjavíkur, kynnti niðurstöður mælinga á forgangsefnum í Tjörninni. Niðurstöðurnar sýna m.a. að þrávirk mengunarefni er að finna í vatnsumhverfi Tjarnarinnar. Tjörnin er í þéttu borgarumhverfi þar sem álag hefur verið af ýmsum toga í gegnum tíðina, meðal annars vegna umferðar og urðunar sem áður fór fram við Tjörnina. Slík mengun getur átt sér margar uppsprettur og verið til staðar í umhverfinu lengi, sem gerir bæði uppruna hennar og mögulegar aðgerðir flóknar viðfangs.

Reykjavík er langt frá því eina borgin sem glímir við áskoranir vegna dreifðrar mengunar sem berst í vatn. Á málþinginu var sýnt myndband um Trekanten-vatn í Stokkhólmi, þar sem tekist hefur verið á við áskoranir sem eiga sér ýmsar hliðstæður við Tjörnina í Reykjavík.

Ofanvatn, fráveita og flóðahætta

Seinni hluti málþingsins beindist meðal annars að því hvernig borgin getur betur tekist á við ofanvatn og flóð og hvernig blágrænar lausnir geta orðið hluti af því.

Halldóra Hreggviðsdóttir, skipulagsráðgjafi og framkvæmdastjóri ALTA, fjallaði um mikilvægi blágrænna ofanvatnslausna. Slíkar lausnir byggja á því að vinna með vatnið þar sem það fellur í stað þess að beina því beint í fráveitukerfið. Þannig má meðal annars draga úr álagi á fráveitu, minnka flóðahættu og skapa um leið grænna og fjölbreyttara borgarumhverfi.

Á málþinginu var einnig sýnt myndband um blágrænar ofanvatnslausnir í Grundarfirði, þar sem unnið er að þróun slíkra lausna innan Vatnalífs.

Sigurður Grétar Sigmarsson, vatnsauðlindaverkfræðingur hjá Verkís, kynnti niðurstöður flóðamats í Kvosinni. Þá fjallaði Jón Pétur Wilke Gunnarsson um endurhönnun fráveitu í Þingholtum.

Erindin sýndu vel hvernig fráveita, meðhöndlun ofanvatns, skipulag og flóðavarnir tengjast og hversu mikilvægt er að horfa á vatnið sem hluta af heildstæðu borgarumhverfi.

LIFE Icewater verður Vatnalíf

Í lok málþingsins fjallaði Sæmundur Sveinsson, verkefnastjóri hjá Umhverfis- og orkustofnun, um LIFE Icewater í heild og þá fjölbreyttu vinnu sem fram fer innan verkefnisins víða um land.

Í lok kynningarinnar tilkynnti Sæmundur jafnframt nýtt íslenskt heiti verkefnisins: Vatnalíf.

Nafnið varð fyrir valinu eftir að kallað var eftir hugmyndum að íslensku heiti LIFE Icewater í lok ágúst. Alls bárust 68 tillögur að 58 mismunandi heitum. Með íslenska heitinu er markmiðið að færa verkefnið nær íslenskum almenningi og skapa skýra umgjörð um þá fjölbreyttu vinnu sem fram fer á sviði vatnamála innan verkefnisins.

Fræðsluganga um Tjörnina

Að málþinginu loknu var boðið upp á fræðslugöngu umhverfis Tjörnina með sérfræðingum sem komu að verkefninu. Gönguna leiddi Haraldur Rafn Ingvason frá Hafrannsóknarstofnun, en í henni var m.a. fjallað um lífríki Tjarnarinnar, ástand vatnsins og þær áskoranir sem fylgja því að viðhalda heilbrigðu vistkerfi í miðju þéttu borgarumhverfi.

Horfðu á málþingið

Málþingið var tekið upp í heild og er hægt að horfa á upptökuna hér.

Nánari upplýsingar um málþingið og dagskrá þess má finna á vef Reykjavíkurborgar.

Taktu þátt í vegferðinni!

Hér getur þú skráð þig á póstlistann. Við sendum þér fréttir frá því helsta sem er að gerast í Icewater verkefninu.

Skrifstofa

Suðurlandsbraut 24

Sími

+354 569 6000

Netfang

icewater@uos.is

Icewater