Icewater á Nordic-Baltic LIFE Platform Meeting í Eistlandi

Fjórir fulltrúar LIFE Icewater frá þremur samstarfsstofnunum tóku þátt í Nordic-Baltic LIFE Platform Meeting sem haldinn var í Lahemaa-þjóðgarðinum í Eistlandi dagana 8.–10. september.

Alls komu þar saman 114 þátttakendur frá 57 stofnunum og 33 LIFE-verkefnum. Þátttakendur komu frá Íslandi, Svíþjóð, Danmörku, Finnlandi, Eistlandi, Litháen og Lettlandi en auk Icewater tók íslenska LIFE-verkefnið Mýralíf þátt.

Markmið ráðstefnunnar var að leiða saman fólk sem vinnur að LIFE-verkefnum á Norðurlöndum og í Eystrasaltsríkjunum, skapa tengsl og miðla reynslu af verkefnum sem takast á við fjölbreyttar áskoranir á sviði umhverfis- og náttúruverndar.

image

Vatn, endurheimt og náttúrumiðaðar lausnir

Viðfangsefni tengd vatni og endurheimt vistkerfa voru áberandi á ráðstefnunni og snertifletir við vinnu LIFE Icewater því fjölmargir. Þar var meðal annars fjallað um ástand ferskvatnsvistkerfa, endurheimt og hvernig náttúrumiðaðar lausnir geta dregið úr álagi á vatn og vistkerfi.

Heill dagur var helgaður vettvangsferðum um Lahemaa-þjóðgarðinn og nágrenni þar sem þátttakendur kynntust aðgerðum LIFE-verkefna í Eistlandi. Meðal annars voru skoðaðar endurheimtaraðgerðir í ám og votlendi þar sem unnið er að úrbótum á vatnsformfræði og búsvæðum fjölbreytts lífríkis. Þátttakendur heimsóttu auk þess rannsóknastöð þar sem kræklingarnir eru ræktaðir við stýrðar aðstæður og fylgst með þroska þeirra og árangri ræktunarinnar áður en þeir eru nýttir í endurheimtaraðgerðum í náttúrunni.

Vettvangsferðirnar tengdust umræðum og vinnustofum ráðstefnunnar þar sem kafað var dýpra í ýmis viðfangsefni. Þar var meðal annars fjallað um þátttöku almennings í vöktun vatns, náttúrumiðaðar lausnir og þátttöku hagaðila. Ein vinnustofanna sneri sérstaklega að miðlun LIFE-verkefna og hvernig hægt er að koma verkefnum, árangri þeirra og lærdómi betur á framfæri.

Pallborð á Nordic-Baltic LIFE Platform Meeting

Grundarfjörður í pallborði

Nanna Vilborg Harðardóttir, verkefnastjóri skipulags- og umhverfismála hjá Grundarfjarðarbæ, tók fyrir hönd verkefnisins þátt í pallborðsumræðum undir yfirskriftinni Nature conservation, democracy and everyday life: learning from LIFE.

Þar ræddu fulltrúar frá Íslandi, Danmörku, Finnlandi, Litháen og Eistlandi meðal annars um þátttöku íbúa og landeigenda, gagnsæi og samstarf við nærsamfélög. Nanna sagði frá reynslunni af blágrænum ofanvatnslausnum í Grundarfirði og þeirri nálgun sem þar hefur verið beitt.

Ráðstefnan gaf fulltrúum Icewater tækifæri til að bera saman bækur sínar við önnur LIFE-verkefni, mynda ný tengsl og sækja hugmyndir og reynslu sem nýtast áfram í verkefninu.

Nánar um Nordic-Baltic LIFE Platform Meeting 2026

Taktu þátt í vegferðinni!

Hér getur þú skráð þig á póstlistann. Við sendum þér fréttir frá því helsta sem er að gerast í Icewater verkefninu.

Skrifstofa

Suðurlandsbraut 24

Sími

+354 569 6000

Netfang

icewater@uos.is

Icewater