Vatnalíf verður íslenskt heiti LIFE Icewater

Vatnalíf varð fyrir valinu sem íslenskt heiti LIFE Icewater!

Alls bárust 68 tillögur með 58 mismunandi heitum þegar óskað var eftir hugmyndum að íslensku heiti verkefnisins í lok ágúst.

Valnefnd fór yfir allar tillögurnar með hliðsjón af tengingu þeirra við verkefnið, skýrleika og notagildi í miðlun. Úr varð að Vatnalíf var valið sem íslenskt heiti verkefnisins.

Vatnið – undirstaða lífs

Vatn er undirstaða lífs og sameiginleg auðlind sem tengir saman náttúru, samfélag og daglegt líf okkar.

Nafnið vísar því ekki aðeins til lífríkis í ám, vötnum og strandsjó heldur til vatnsins í víðara samhengi, frá uppsprettu til sjávar og frá náttúrulegum vistkerfum til vatnsnotkunar og samfélags.

Vatnalíf fangar þannig vel þá breidd sem einkennir verkefnið og fjölbreytt viðfangsefni þess.

Óli Kristján dreginn úr hópi sex þátttakenda

Sex þátttakendur lögðu til nafnið Vatnalíf og var því dregið af handahófi úr þeim hópi. Óli Kristján Ármannsson var dreginn út og hlýtur gjafabréf fyrir tvo í Reykjaböðin í Hveragerði.

Við óskum Óla Kristjáni til hamingju og þökkum öllum sem tóku þátt fyrir frábærar hugmyndir og góðar tillögur!

Vatnalíf tekið í notkun

Næsta skref er að taka nýja heitið smám saman í notkun í íslenskri miðlun verkefnisins. Það gerist í áföngum á næstu vikum og mánuðum og því mun LIFE Icewater áfram sjást samhliða Vatnalífi um tíma á meðan miðlar og kynningarefni eru uppfærð.

Taktu þátt í vegferðinni!

Hér getur þú skráð þig á póstlistann. Við sendum þér fréttir frá því helsta sem er að gerast í Icewater verkefninu.

Skrifstofa

Suðurlandsbraut 24

Sími

+354 569 6000

Netfang

icewater@uos.is

Icewater