Blágrænar lausnir í Grundarfirði kynntar ráðherra og nýrri bæjarstjórn

Það hefur verið líflegt í kringum vatnamál í Grundarfirði að undanförnu. Í byrjun september var LIFE Icewater kynnt fyrir nýrri bæjarstjórn og öðrum fulltrúum sveitarfélagsins og daginn eftir fékk umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra að kynna sér verkefnið og framkvæmdir í bænum.
Fræðsludagur fyrir kjörna fulltrúa
Þann 2. september var haldinn fræðsludagur um LIFE Icewater fyrir kjörna fulltrúa og varamenn í nefndum Grundarfjarðarbæjar, auk nýs starfsfólks á sviði skipulags- og byggingarmála og nýs bæjarstjóra.
Gestur, forstjóri Umhverfis- og orkustofnunar, fjallaði í upphafi um mikilvægi LIFE Icewater, Sæmundur verkefnastjóri LIFE Icewater kynnti verkefnið og viðfangsefni þess á landsvísu og Nanna Vilborg Harðardóttir, verkefnisstjóri skipulags- og umhverfismála, fjallaði um Icewater-vinnuna í Grundarfirði.
Líflegar umræður urðu í kjölfar kynninganna. Að fundi loknum var farið í vettvangsferð þar sem skoðaðar voru framkvæmdir við blágrænar ofanvatnslausnir sem þegar eru hafnar í bænum.
Ráðherra kynnti sér framkvæmdirnar
Daginn eftir, 3. september, heimsótti Jóhann Páll Jóhannsson umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra Grundarfjörð. Í heimsókninni fékk hann meðal annars kynningu á blágrænum ofanvatnslausnum og því hvernig Grundarfjarðarbær vinnur að því að leysa áskoranir í fráveitumálum með innleiðingu þeirra.
Nanna Vilborg kynnti verkefnið fyrir ráðherra og fór með honum um Hrannarstíg þar sem hann kynnti sér framkvæmdir sem þegar eru hafnar.
Blágrænu ofanvatnslausnirnar í Grundarfirði eru hluti af LIFE Icewater og miða meðal annars að því að bæta meðhöndlun ofanvatns og þróa lausnir sem nýtast geta sem fyrirmynd við innleiðingu slíkra lausna víðar.
Nánar má lesa um heimsókn ráðherra á vef Grundarfjarðarbæjar.
NÝLEGAR FRÉTTIR
SJÁ ALLAR14 september 2026
Icewater á Nordic-Baltic LIFE Platform Meeting í Eistlandi26 ágúst 2026
Fjölbreytt fræðsla um vatn25 ágúst 2026
Fræðsla um frárennsli hjá bílaleigum