Ný LIFE-verkefni kynnt á haustfögnuði Vatnalífs

Samstarfsaðilar Vatnalífs hittust í Guðmundarlundi í Kópavogi föstudaginn 6. nóvember. Sæmundur Sveinsson setti haustfögnuðinn og Kristinn H. Þorsteinsson, framkvæmdastjóri Skógræktarfélags Kópavogs, fór með hópinn í fræðslugöngu um lundinn.
Þátttakendur kynntust tveimur nýjum LIFE-verkefnum sem áætlað er að hefjist á næsta ári. Gyða Einarsdóttir frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga kynnti Circle of LIFE, sem miðar að því að efla hringrásarhagkerfið á Íslandi, meðal annars með því að draga úr sóun og bæta meðhöndlun úrgangs. Kamma Thordarson frá Veðurstofu Íslands kynnti IceNAP, sem styður við framkvæmd áætlunar Íslands um aðlögun að loftslagsbreytingum.
Bára Huld Beck og Elisabeth Bernard kynntu Mýralíf, sem vinnur að endurheimt votlendis og bættum búsvæðum fugla. Þær sögðu frá reynslu sinni af því að nota bæði íslenska heitið Mýralíf og enska heitið Peatland LIFEline. Sú reynsla nýtist Vatnalífi vel, enda fékk LIFE Icewater íslenska heitið sitt í haust.
Kolbrún Sveinsdóttir frá Matís kynnti CLEAR-WATER, evrópskt rannsóknarverkefni undir forystu Matís. Þar þróa og prófa vísindamenn samræmdar aðferðir til að vakta rusl í ám, vötnum og sjó, allt frá stórum hlutum niður í örsmáar plastagnir. Þannig verður auðveldara að bera niðurstöður saman milli svæða og meta umfang mengunar.
Haustfögnuðurinn gaf fólkinu á bak við verkefnin tækifæri til að kynnast, deila reynslu og ræða hvar verkefnin skarast. Björk Emilsdóttir, samskiptastjóri Vatnalífs, leiddi vinnustofu þar sem þátttakendur ræddu hvaða sögur úr daglegu starfi þeirra gætu vakið áhuga almennings. Deginum lauk með spurningakeppni og sameiginlegum kvöldverði.
NÝLEGAR FRÉTTIR
SJÁ ALLAR10 nóvember 2026
Ný LIFE-verkefni kynnt á haustfögnuði Vatnalífs30 september 2026
Líf og fjör á Vísindavöku21 september 2026
LIFE Icewater fær íslenska heitið Vatnalíf
