Þar sem vatn má streyma á jafnréttið heima

Vel heppnaður síðdegisfundur um vatn og kynjajafnrétti í Elliðaárstöð 20. mars 2026

Föstudaginn 20. mars síðastlinn var haldinn síðdegisfundur í Elliðaárstöð í Reykjavík í tilefni af alþjóðlegum degi vatns. Dagurinn er haldinn hátíðlegur um heim allan ár hvert og að þessu sinni lögðu Sameinuðu þjóðirnar áherslu á tengsl vatns og kynja. Að fundinum stóðu Íslenska vatnafræðinefndin, Orkuveitan og LIFE verkefnið Icewater.

Þrír aðilar voru með framsögu á fundinum: Pálína B. Matthíasdóttir, deildarstjóri Þróunarsamvinnuskrifstofu utanríkisráðuneytisins, Esther Chinecherem George, nemandi við Jafnréttisskóla GRÓ, Háskóla Íslands og Stefán Pálsson, sagnfræðingur. Öll komu þau með fræðandi og ólík sjónarhorn á mikilvægi vatns, sérstaklega þegar kemur að auknu kynjajafnrétti í heiminum.

Skipuleggjendur fundarins þakka fyrirlesurum kærlega fyrir sitt framlag og fundargestum fyrir líflegar umræður.

Taktu þátt í vegferðinni!

Hér getur þú skráð þig á póstlistann. Við sendum þér fréttir frá því helsta sem er að gerast í Icewater verkefninu.

Skrifstofa

Suðurlandsbraut 24

Sími

+354 569 6000

Netfang

icewater@uos.is

Icewater