EUROLAG11: Alþjóðleg ráðstefna um strandlón og árósa haldin á Íslandi í fyrsta sinn

Dagana 18.–21. ágúst verður EUROLAG11 ráðstefnan haldin í fyrsta sinn á Íslandi. EUROLAG er evrópskt samstarfsnet fræðimanna sem sinna rannsóknum og vöktun í sjávarlónum, árósum og öðrum strandsvæðum á mörkum ferskvatns og sjávar. Gert er ráð fyrir að um 50 erlendir vísindamenn, auk fjölda íslenskra fræðimanna, taki þátt í ráðstefnunni og kynni rannsóknir sínar.
Árósar og lón eru mikilvæg vistkerfi sem búa yfir einstakri líffræðilegri fjölbreytni. Þau veita jafnframt fjölbreytta og mikilvæga vistkerfaþjónustu. Álag á þessi vistkerfi fer vaxandi og eru þau viðkvæm fyrir áhrifum mannlegra umsvifa og loftslagsbreytinga.
Á ráðstefnunni verður sérstök áhersla lögð á áhrif hlýnunar sjávar, útbreiðslu framandi tegunda og hvernig þessir þættir hafa áhrif á vistfræðilegt ástand strandlóna og strandsvæða. Einnig verður fjallað um vöktun, vernd, stjórnun og mat á ástandi vatnshlota, auk nýjustu rannsókna og reynslu af framkvæmd vatnatengdra verkefna víða um Evrópu.
Dagskráin samanstendur af fyrirlestrum og veggspjaldasýningum. Meðal aðalfyrirlesara verður Henn Ojaveer, vistfræðingur hjá Alþjóðahafrannsóknaráðinu (ICES). Hann er þekktur fyrir rannsóknir á áhrifum loftslagsbreytinga og framandi tegunda á vistkerfi strandsvæða.
Ráðstefnan verður haldin í húsakynnum Hafrannsóknastofnunar í Hafnarfirði og lýkur með vettvangsferð þar sem þátttakendur fá tækifæri til að kynnast íslenskum strandsvæðum og lónakerfum.
EUROLAG11 er hluti af miðlun og alþjóðlegu samstarfi innan LIFE Icewater verkefnisins, sem vinnur að því að efla þekkingu á vatni á Íslandi, bæta vatnsgæði og styrkja stjórnsýslu vatnamála. Ráðstefnan skapar mikilvægt tækifæri til að kynna íslenskar rannsóknir, reynslu og áskoranir á alþjóðlegum vettvangi og efla samstarf við sérfræðinga frá öðrum löndum.
Áhugasamir eru hvattir til að kynna sér ráðstefnuna á vef EUROLAG11.
NÝLEGAR FRÉTTIR
SJÁ ALLAR18 júní 2026
Eurolag111 júní 2026
Icewater á ársfundi LIFE áætlunarinnar16 apríl 2026
Ársfundur í Grundarfirði