Fjölbreytt fræðsla um vatn

Orkuveitan sinnir fjölbreyttri fræðslu og vitundarvakningu um vatn í tengslum við Icewater. Áhersla er lögð á að gera hringrás vatnsins sýnilegri og auka skilning á því hvernig við nýtum vatn, hvaða innviðir liggja að baki og hvernig stuðla má að vernd þess.

Fræðsla um vatn skipar mikilvægan sess í starfsemi Elliðaárstöðvar, þar sem meðal annars er tekið á móti skólahópum. Þar er vatnið skoðað frá ýmsum hliðum og fræðsluefnið Ferðalag vatnsdropans meðal annars nýtt til að fylgja vatninu frá náttúrunni, inn á heimilin og aftur út í umhverfið. Þannig fá börn innsýn í hringrás vatnsins og innviði sem alla jafna eru okkur ósýnilegir.

Blágrænar ofanvatnslausnir eru einnig meðal þess sem fjallað er um í fræðsluefni Elliðaárstöðvar. Þar er útskýrt hvernig slíkar lausnir geta fært meðhöndlun regnvatns nær náttúrulegri hringrás vatnsins. Tjörnin á Veitutorgi við Elliðaárstöð er raunverulegt dæmi um hvernig blágræn lausn getur tekið við regnvatni í borgarumhverfi.

Á Jarðhitasýningunni á Hellisheiði hefur vatninu jafnframt verið gert hátt undir höfði með sérstökum vatnsvegg. Þar er vatnið notað sem útgangspunktur fyrir myndræna frásögn sem dregur fram mikilvægi þess og tengsl við náttúru, samfélag og daglegt líf.

Með fræðslunni er leitast við að færa vatnið og hringrás þess nær fólki og auka vitund um mikilvægi þessarar dýrmætu auðlindar.

Taktu þátt í vegferðinni!

Hér getur þú skráð þig á póstlistann. Við sendum þér fréttir frá því helsta sem er að gerast í Icewater verkefninu.

Skrifstofa

Suðurlandsbraut 24

Sími

+354 569 6000

Netfang

icewater@uos.is

Icewater