Fræðsla um frárennsli hjá bílaleigum

Starfsfólk Isavia heimsótti nýverið nokkrar bílaleigur við Keflavíkurflugvöll til að kynna LIFE Icewater og ræða verklag við bílaþvott og frárennsli. Heimsóknirnar eru liður í fræðslu og samstarfi við rekstraraðila á flugvellinum með það að markmiði að draga úr hættu á mengun grunnvatns.
Vatn sem fellur til við bílaþvott getur innihaldið ýmis efni og því skiptir máli hvernig staðið er að frárennsli. Í heimsóknunum kynnti starfsfólk Isavia sér verklag bílaleiganna og ræddi við starfsfólk um meðal annars þjálfun og fræðslu á þessu sviði.
Heimsóknirnar veittu Isavia betri innsýn í aðstæður og áskoranir í daglegum rekstri bílaleiganna. Í lok hverrar heimsóknar var skilinn eftir upplýsingabæklingur með fræðslu um vatn og leiðir til að koma í veg fyrir að mengandi efni berist í grunnvatn.
Mynd: Isavia
NÝLEGAR FRÉTTIR
SJÁ ALLAR30 september 2026
Líf og fjör á Vísindavöku21 september 2026
LIFE Icewater fær íslenska heitið Vatnalíf14 september 2026
Icewater á Nordic-Baltic LIFE Platform Meeting í Eistlandi