Icewater á ársfundi LIFE áætlunarinnar

Rannís stóð fyrir ársfundi LIFE áætlunarinnar á Íslandi í Norræna húsinu þann 28. maí, en Rannís fer fyrir LIFE-ICECAP hér á landi. LIFE-ICECAP styður við þátttöku íslenskra aðila í LIFE áætluninni og miðlar upplýsingum um tækifæri, umsóknir og samstarf innan hennar.
Á fundinum var farið yfir stöðu LIFE áætlunarinnar á Íslandi, en íslenskir aðilar hafa fengið úthlutað 5,5 milljörðum króna úr áætluninni frá árinu 2021. Dagskráin náði til nýrra verkefna á sviði náttúruverndar, hringrásarhagkerfis, loftslags- og orkumála. Einnig voru kynnt verkefnin MýrarLíf/PeatlandLIFEline.is, TerraformingLIFE og RECET, auk þess sem rætt var sérstaklega um LIFE og sveitarfélögin, næstu skref og tækifæri innan áætlunarinnar.
Icewater var á dagskrá fundarins. Sæmundur Sveinsson, verkefnisstjóri Icewater hjá Umhverfis- og orkustofnun flutti erindi um verkefnið, samstarfið og þá reynslu sem hefur orðið til við undirbúning og framkvæmd þess.
Þórólfur Jónsson, deildarstjóri hjá Reykjavíkurborg, og Jón Pétur Wilke, verkefnastjóri hjá Veitum fjölluðu sérstaklega um Vatnsmýrina, þar sem unnið er að úrbótum. Vatnsmýrin er undir álagi m.a. vegna nálægðar við þéttbýli, fráveitukerfi og ofanvatns sem berst af götum og öðrum manngerðum svæðum.
