Frumsýning á nýrri lausn til meðhöndlunar fráveituvatns vakti mikinn áhuga

Mikill áhugi var á frumsýningu Icewater-gámsins sem fram fór 27. maí. Gestir frá iðnaði, stjórnsýslu, stofnunum og fyrirtækjum komu saman til að kynna sér nýja lausn sem snýr að formeðhöndlun iðnaðarfrárennslis og verðmætasköpun úr fráveitu frá matvælaiðnaði.

Á viðburðinum var farið yfir þróun verkefnisins, tæknina á bak við gáminn og þau tækifæri sem felast í aukinni nýtingu verðmæta úr frárennslisstraumum. Um 60 gestir sóttu viðburðinn og sköpuðust líflegar umræður um möguleika tækninnar fyrir íslenskan iðnað og umhverfismál.

Pétur Blöndal, eigandi Iðnvers, setti viðburðinn. Í framhaldinu kynntu Ottó Elíasson og Karen Mist Kristjánsdóttir þróun verkefnisins, samstarfið á bak við það og hönnun gámsins.

Katrín Lilja Sigurðardóttir hélt fyrirlestur um efnafræðina á bak við hreinsiferlið og útskýrði hvernig olíur, fitur og önnur lífræn efni eru aðskilin úr frárennslisvatni með þriggja þrepa efnameðhöndlun og DAF-loftfleytingu. Trevor Gent sýndi því næst hvernig aðskilnaður óhreininda úr vatni fer fram í kerfinu, en sýningin vakti mikla athygli meðal gesta.

Að loknum erindum gafst þátttakendum kostur á að skoða gáminn, ræða við verkefnateymið og kynna sér tæknina nánar.

Taktu þátt í vegferðinni!

Hér getur þú skráð þig á póstlistann. Við sendum þér fréttir frá því helsta sem er að gerast í Icewater verkefninu.

Skrifstofa

Suðurlandsbraut 24

Sími

+354 569 6000

Netfang

icewater@uos.is

Icewater