Leitað að íslensku heiti fyrir LIFE Icewater

Við leitum að góðu íslensku heiti fyrir LIFE Icewater og viljum fá þínar hugmyndir. Nafnasamkeppnin stendur yfir 24.–30. ágúst.

LIFE Icewater, oftast einfaldlega kallað Icewater, hefur nú verið í gangi um nokkurt skeið og eftir því sem vinnunni hefur undið fram hefur orðið æ skýrara að gott íslenskt heiti myndi færa verkefnið nær okkur og nýtast vel í miðlun þess hér á landi. Þess vegna efnum við nú til nafnasamkeppni og þurfum þína hjálp.

LIFE Icewater er stórt samstarfsverkefni sem styður við framkvæmd vatnaáætlunar á Íslandi. Verkefnið nær yfir fjölbreytt viðfangsefni vatnamála og innan þess er meðal annars unnið að:

  • vöktun og aukinni þekkingu á ástandi vatns,
  • bættri fráveitu og minni mengun,
  • sjálfbærri nýtingu vatns,
  • vernd og endurheimt vatnavistkerfa,
  • eflingu stjórnsýslu og samstarfs um vatnamál,
  • fræðslu og miðlun um vatnamál.

Við leitum að íslensku heiti sem nær vel utan um verkefnið, er lipurt og eftirminnilegt og hentar vel í miðlun.

Hvernig tek ég þátt?

Sendu okkur tillögu að íslensku heiti ásamt stuttum rökstuðningi í síðasta lagi á miðnættu 30. ágúst. Þú mátt senda inn fleiri en eina tillögu.

SENDU INN TILLÖGU →

Hvernig verður heitið valið?

Að keppni lokinni fer valnefnd yfir innsendar tillögur og velur það heiti sem best þykir henta verkefninu. Í valnefndinni sitja:

  • Anna Sigríður Þráinsdóttir, málfarsráðunautur RÚV
  • Karen Dröfn Kjartansdóttir, Veðurstofa Íslands
  • Rannveig Thoroddsen, Náttúrufræðistofnun
  • Guðmundur I. Bergþórsson, Hafrannsóknastofnun
  • Ester Alda Hrafnhildur Bragadóttir, Umhverfis- og orkustofnun

Tillögurnar verða lagðar fyrir valnefndina án upplýsinga um þátttakendur. Icewater áskilur sér rétt til að útfæra eða aðlaga tillögur áður en endanlegt heiti er ákveðið.

Verðlaun

Sigurhugmyndin verður verðlaunuð með gjafabréfi í Reykjaböð, nýtt baðlón í Hveragerði.

Ef sama heiti berst frá fleiri en einum þátttakanda verður dregið um verðlaunin meðal þeirra sem sendu það inn.

Við hlökkum til að sjá hvað ykkur dettur í hug!

Taktu þátt í vegferðinni!

Hér getur þú skráð þig á póstlistann. Við sendum þér fréttir frá því helsta sem er að gerast í Icewater verkefninu.

Skrifstofa

Suðurlandsbraut 24

Sími

+354 569 6000

Netfang

icewater@uos.is

Icewater