Sérfræðingar í strandsjó, árósum og sjávarlónum komu saman á Íslandi

Hafrannsóknastofnun og Umhverfis- og orkustofnun stóðu að EUROLAG11 í Hafnarfirði í tengslum við Icewater. Um 80 þátttakendur sóttu ráðstefnuna, þar sem fjallað var um rannsóknir og vöktun sjávarlóna, árósa og strandsvæða.
EUROLAG11 fór fram í húsakynnum Hafrannsóknastofnunar dagana 18.–21. ágúst og var þetta í fyrsta sinn sem ráðstefnan var haldin á Íslandi. Ráðstefnan var hluti af alþjóðlegu samstarfi og miðlun innan Icewater og skapaði vettvang til að tengja saman íslenska og erlenda sérfræðinga og deila þekkingu sem nýst getur við innleiðingu vatnatilskipunarinnar.
Dagskráin spannaði þrjá daga af erindum, veggspjöldum og umræðum og lauk með vettvangsferð þar sem þátttakendur kynntust fjölbreyttum strandsvæðum og vistkerfum. Í ferðinni var meðal annars komið við í Grunnafirði, þar sem Bjarni Diðrik Sigurðsson tók á móti hópnum og fræddi þátttakendur um svæðið og náttúrufar þess. Á Hvanneyri kynntust þátttakendur síðan endurheimt votlendis í Mýralíf verkefninu (Peatland LIFEline), heimsóttu Landbúnaðarsafnið og sýningu um lax.
Þrír frummælendur fluttu erindi: Jónas Páll Jónasson frá Hafrannsóknastofnun, Henn Ojaveer frá Alþjóðahafrannsóknaráðinu (ICES) og Guðbjörg Ásta Ólafsdóttir frá Rannsóknasetri Háskóla Íslands á Vestfjörðum.
Vinnustofa tengd vinnu Icewater
Í aðdraganda ráðstefnunnar stóðu Hafrannsóknastofnun og Umhverfis- og orkustofnun jafnframt fyrir vinnustofu 17. ágúst í tengslum við Icewater. Henn Ojaveer leiddi vinnustofuna en um 15 sérfræðingar tóku þátt.
Fyrri hluti vinnustofunnar sneri að gerðarskiptingu og flokkun árósavatna á Íslandi, sem er hluti af yfirstandandi vinnu innan Icewater. Ragna Guðrún Snorradóttir frá Náttúrustofu Norðurlands Vestra kynnti stöðu vinnunnar hér á landi og í kjölfarið leiddi Henn umræður um helstu áskoranir og álitaefni við gerðarskiptingu og þróun flokkunarkerfis fyrir árósavötn.
Eftir hádegi var sjónum beint að framandi og ágengum tegundum í strandsjó og árósavötnum. Henn fjallaði um vöktun og mat á slíkum tegundum á alþjóðavísu og þátttakendur ræddu stöðuna hér á landi og helstu áskoranir varðandi vöktun og mat.
Nánari upplýsinga má finna á vef EUROLAG11.
NÝLEGAR FRÉTTIR
SJÁ ALLAR26 ágúst 2026
Fjölbreytt fræðsla um vatn25 ágúst 2026
Fræðsla um frárennsli hjá bílaleigum24 ágúst 2026
Hvað á Icewater að heita á íslensku? | LIFE ICEWATER